Nokia 1101 - Umhirða og viðhald

background image

Umhirða og viðhald

Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með. Eftirfarandi
leiðbeiningar hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.

Geyma skal símann og alla fylgihluti hans þar sem börn ná ekki til.

Halda skal símanum þurrum. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið steinefni
sem tæra rafrásirnar.

Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né geyma það þar. Færanlegir hlutir
og rafrænir íhlutir í því geta skemmst.

Ekki má geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu rafeindatækja,
skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.

Ekki má geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur
raki myndast innan í því og hann getur skemmt rafrásaspjöld.

Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er í þessari handbók.

Tækinu má ekki henda, ekki má banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð getur
skemmt innri rafrásarspjöld og fíngerðan búnað.

Ekki má nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa
tækið.

Ekki má mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg fyrir
að þeir vinni rétt.

Nota skal mjúkan, hreinan, þurran klút til að hreinsa linsur (svo sem myndavélar-,
fjarlægðarnema- og ljósnemalinsur).

background image

63

Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved

.

Aðeins má nota loftnetið sem fylgir með símanum eða samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt
loftnet, breytingar á þeim eða viðbætur, gætu skemmt tækið og kunna að brjóta í bága
við ákvæði laga um senditæki.

Allar ofangreindar ábendingar eiga jafnt við símann, rafhlöðuna, hleðslutækið eða aðra
aukahluti. Ef einhver þessara hluta vinnur ekki rétt skal leita til næsta viðurkennda
þjónustuaðila og starfsfólk þar aðstoðar og sér um viðgerð ef þörf krefur.

background image

64

Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved

.